Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Ebólufaraldur kominn til Úganda — Bandaríkin flytja sitt fólk brott

Ebólufaraldurinn sem upp er kominn í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó hefur nú náð til nágrannaríkisins Úganda.Rachel Rukwati var klædd í sóttvarnarbúning áður en hún fór inn á sóttvarnastöð fyrir ebóla-sjúklinga árið 2019.EPA / HUGH KINSELLA CUNNINGHAMAlþjóðaheilbrigðisstofnunin hefur skilgreint þennan faraldur sem alþjóðlega lýðheilsuvá. Vel á þriðja hundrað smit hafa komið upp og um 80 manns eru talin hafa látist af völdum veirunnar, sem er af sérlega banvænum Bundibugyo-stofni.Bandarísk heilbrigðisyfirvöld hafa ákveðið að flytja fámennan hóp ríkisborga brott frá Kongó. Hópnum verður haldið í sóttkví þar sem talið er að hann hafi komist í snertingu við fólk smitað af ebólu. Alþjóðaheilbrigðisstofnunin óttast að útbreiðslan sé meiri en skráð tilvik gefi vísbendingar um.
Ebólufaraldur kominn til Úganda — Bandaríkin flytja sitt fólk brott
Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd