Umdeild lög tóku gildi í gærkvöld sem heimila dauðarefsingu yfir þeim Palestínumönnum á Vesturbakkanum sem fremja hryðjuverk gegn Ísrael. Slík mál fara sjálfkrafa fyrir herdómstól og herráðsforinginn Avi Bluth undirritaði tilskipun í gær um gildistöku laganna.Samkvæmt ákvæðum laganna, sem samþykkt voru í mars, ber dómstólum að gera dauðarefsingu sjálfgefna niðurstöðu í málum gegn Palestínumönnum sem af ásettu ráði hafa gert mannskæðar árásir af því tagi sem Ísraelsríki flokkar sem hryðjuverk.Undir sérstökum mildandi kringumstæðum mega dómarar kveða upp lífstíðardóm í staðinn. Lögin taka ekki til sams konar glæpa ísraelskra ríkisborgara sem fara fyrir borgaralega dómstóla.Frumvarpið var sérstakt baráttumál þjóðaröryggisráðherrans Itamars Ben-Gvir, sem leiðir stjórnmálaflokk yst á hægri kant