Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins sendi tvo sjúkrabíla og dælubíl seint í gærkvöld þangað sem tveir bílar höfnuðu utan vegar við Breiðholtsbraut. Pálmi Hlöðversson, varðstjóri hjá slökkviliðinu, segir í samtali við fréttastofu að þrír hafi verið fluttir á slysadeild til skoðunar. Hann kveðst ekki vita um líðan þeirra. Vísir hefur eftir sjónarvottum að lögregla hafi veitt öðrum bílnum eftirför úr Hafnarfirði sem endaði með árekstri og birtir myndskeið sem sýnir skemmda bíla utan vegar. Öðrum hafði verið ekið utan í tré. Pálmi segir jafnframt að dælubíll hafi verið sendur laust fyrir miðnætti til að slökkva eld sem logaði í yfirgefnum bíl á iðnaðarsvæði í útjaðri Mosfellsbæjar. Bíllinn hafi verið alelda þegar að var komið og megi teljast ónýtur. Skamma stund tók að slökkva eldinn og enginn var