Dennis Locorriere, einn stofnenda, aðalsprauta og söngvari hljómsveitarinnar Dr. Hook, er látinn 79 að aldri. Hann hafði lengi glímt við nýrnasjúkdóm. Hinn aðalsöngvari Dr. Hook, Ray Sawyer, maðurinn með kúrekahattinn og augnleppinn, lést árið 2018. Hljómsveitin er þekktust fyrir lög á borð við Sexy Eyes, When You’re In Love With A Beautiful Woman og Sylvia’s Mother. Locorriere var einn stofnenda Dr. Hook & the Medicine Show árið 1968, sem naut mikilla vinsælda á 8. áratugnum og snemma á þeim níunda. Lacorriere hélt tónleika í Eldborgarsal Hörpu í júní árið 2017 undir því hljómsveitarheiti. Hann hafði öðlast eignarhald á nafninu eftir að sveitin leystist upp árið 1985. Ray Sawyer fékk hins vegar leyfi til að skemmta undir merkjum Dr. Hook þremur árum síðar. Sú útgáfa Dr. Hook tróð upp á Ís