Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í borginni, hittir oddvita þeirra flokka sem hlutu kjör í borgarstjórn á morgun.Hildur er með öll spil á hendi fyrir meirihlutaviðræður og hefur sagt báða kosti mögulegs meirihluta í borgarstjórn góða, þriggja flokka meirihluta með Viðreisn og Framsóknarflokki og tveggja flokka meirihluta með Miðflokknum. „ALDREI Á MINNI VAKT“ Hildur Björnsdóttir segir að ekki verði á hennar vakt myndaður meirihluti þar sem fordómar séu í öndvegi eða liðnir„Hér er fólk að lýsa yfir áhyggjum af mögulegum meirihluta, hægri meirihluta eða hægri miðju meirihluta, að ákveðin sjónarhorn verði víkjandi. Ég vil segja strax að ég myndi aldrei kæra mig um að leiða meirihluta þar sem rasismi eða fordómar gagnvart minnihlutahópum eru í öndvegi eða liðnir, bara aldre