Nafn Heiðu Bjargar Hilmisdóttur var útstrikað 1.161 sinni af S-lista Samfylkingarinnar í Reykjavíkurborg. Þetta kemur fram í tilkynningu frá yfirkjörstjórn Reykjavíkurborgar. Heiða skipaði annað sæti á lista flokksins.Nafn Brynjars Níelssonar, frambjóðanda D-lista Sjálfstæðisflokks, var útstrikað næstoftast út eða alls 364 sinnum.Innsláttarvilla sem hefur engin áhrifÍ tilkynningu yfirkjörstjórnar segir sömuleiðis að við yfirferð hafi komið í ljós misræmi milli lesinna talna á kjörfundi og talinna atkvæða.Samkvæmt Evu Bryndísi Helgadóttur, formanni yfirkjörstjórnar, var um að ræða heiðarlega innsláttarvillu í talningarskjal, villan hafi engin áhrif á lokatölur.Í upplesnum tölum á kjörfundi var sagt að M-listi Miðflokks hefði hlotið 8.912 atkvæði en í raun voru atkvæðin 7.912. Heildarfjöldi