Pétur Marteinsson er svekktur með úrslit kosninganna en segir að það hafi verið mótvindur í kosningabaráttunni frá upphafi hennar. Skilaboðin til flokksins séu að það þurfi að gera betur og hlusta meira. Síðasta kjörtímabil hafi verið flókið og mistök hafi verið gerð.Oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík segir að það hafi verið mikill mótvindur í kosningabaráttunni. Flokkurinn þurfi að gera betur og hlusta meira. Hann efast um að óvinsældir fráfarandi borgarstjóra hafi haft áhrif á gengi flokksins.„Í dag líður mér bara allt í lagi. Ég verð að viðurkenna að ég var mjög svekktur þegar ég sá úrslitin fyrst birtast í beinni útsendingu,“ segir Pétur Marteinsson, oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík, inntur eftir viðbrögðum við úrslitum kosninganna í höfuðborginni. MINNSTA FYLGI Í REYKJAVÍK F