Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Niðurstöðurnar ákveðið viðvörunarmerki fyrir forsætisráðherra

Prófessor í stjórnmálafræði segir ljóst að Samfylkingin þurfi að líta í eigin barm og endurskoða erindi sitt í sveitarstjórnum. Niðurstöður sveitarstjórnarkosninganna séu ákveðið viðvörunarmerki fyrir Kristrúnu Frostadóttur, forsætisráðherra, sem hingað til hafi verið í miklum meðbyr. NÝR VERULEIKI FYRIR SAMFYLKINGUNA „Þetta er í fyrsta sinn sem Kristrún Frostadóttir fær á sig mikinn mótbyr og hún nær alls ekki þeim árangri í þessum kosningum sem Samfylkingarfólk, að ég hygg, myndi ætla og vilja. Þannig að þetta er auðvitað ákveðið viðvörunarmerki fyrir forsætisráðherra, það er algjörlega ljóst,“ segir Eiríkur Bergmann, prófessor í stjórnmálafræði.Flokkurinn standi frammi fyrir nýjum veruleika.„Þetta er auðvitað versta útkoma Samfylkingarinnar í Reykjavík og það er auðvitað mjög sárt fy
Niðurstöðurnar ákveðið viðvörunarmerki fyrir forsætisráðherra
Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd