Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Farmenn hjá Eimskipum boða verkfall að nýju

Sjómannafélag Íslands boðar ótímabundið verkfall bátsmanna og háseta á skipum Eimskips frá hádegi mánudaginn 25. maí. Formaður samninganefndar farmanna segir engan gang í kjaraviðræðunum við Eimskip.Farmenn boðuðu fyrst verkfall í apríl en Eimskip taldi það ólögmætt. Verkfallið var blásið af og deilunni vísað til ríkissáttasemjara 9. apríl.„Þetta er búið að vera þrautaganga og ekkert verið að gerast í því sem við viljum ræða við þá þannig við sjáum því miður ekki aðra leið heldur en að boða vinnustöðvun á skip Eimskipafélagsins,“ segir Jónas Garðarsson, formaður samninganefndar farmanna. „EKKI ÓSVIPAÐ OG VIRÐIST VERA AÐ GERAST HJÁ ICELANDAIR“ Jónas segir helstu ágreiningsefnin milli Sjómannafélagsins og Eimskipafélagsins vera starfsöryggi íslenskra sjómanna hjá Eimskipafélaginu, sem er
Farmenn hjá Eimskipum boða verkfall að nýju
Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd