Hjónin Eydís Inga Sigurjónsdóttir og Davíð Birkir Tryggvason fengu bæði sæti í sveitarstjórn Skagastrandar, Eydís sem oddviti Framsóknar og Davíð í öðru sæti fyrir Samfylkinguna. Eydís segir þau hjón aldrei hafa verið sammála um stjórnmál en búi þar af leiðandi að góðri æfingu af því að rökræða þau og miðla málum.