Hásetar og bátsmenn á skipum Eimskips hafa boðað ótímabundið verkfall á mánudaginn í næstu viku, náist samningar ekki við Sjómannafélag Íslands. Hafnarstarfsmenn munu svo að óbreyttu leggja niður störf degi síðar. Aðgerðirnar geta haft veruleg áhrif á afköst í Sundahöfn og siglingaráætlun Dettifoss, Brúarfoss og Selfoss.