Kosningaþátttaka í Reykjanesbæ var lægst allra sveitarsfélaga í sveitarstjórnarkosningunum. Formaður yfirkjörstjórnar segir íbúasamsetningu hafa umtalsverð áhrif á kjörsókn.Um 17.000 manns voru á kjörskrá í Reykjanesbæ í sveitarstjórnarkosningunum. Rúmlega helmingur þeirra greiddi atkvæði eða 51,6 prósent og var kjörsóknin sú lægsta á landsvísu, líkt og í síðustu sveitarstjórnarkosningum.Jóna Hrefna Bergsteinsdóttir, formaður yfirkjörstjórnar Reykjanesbæjar, segir fólksfjölgun og íbúasamsetningu koma til með að útskýra lága kosningaþátttöku í sveitarstjórnarkosningum.„Okkur er búið að fjölga um tæplega 2500 manns á milli kosninganna núna og 2024. Ef við berum okkur saman við alþingiskosningar og forsetakosningar, þar sem eru annars konar lög um hverjir mega kjósa, þá erum við í kringum 73%