FH er áfram án sigurs í Bestu deild karla eftir 1-2 tap gegn KA á Kaplakrikavelli í sjöundu umferð deildarinnar í kvöld. Norðanmenn tryggðu sér sigurinn með marki Jakobs Snæs Árnasonar undir lok leiks eftir mikla dramatík, rautt spjald og langa töf vegna bilunar í vökvunarkerfi vallarins.