Oddviti Framsóknarflokksins í Grindavík segir góða kjörsókn í bænum, rúm 75 prósent, til marks um að Grindvíkingum sé alvara með endurreisn bæjarins. Framsóknarflokkurinn varð hlutskarpastur og bætti við sig tveimur fulltrúum í bæjarstjórn.„Ég og við erum gríðarlega sátt við þessa kosningu sem við fengum afgerandi umboð til forystu á næsta kjörtímabili þannig að þetta er mjög ánægjulegt fyrir okkur og fyrir Grindvíkinga alla í rauninni. Þetta var bara ánægjulegur dagur og var ágætis kosningaþátttaka og mikið líf í Grindavík í gær,“ segir Ásrún Helga Kristinsdóttir, oddviti Framsóknarflokksins í Grindavík.Miðflokkurinn var stærsti flokkurinn í síðustu sveitarstjórnarkosningum í Grindavík en sat þó í minnihluta með þrjá fulltrúa af sjö. Framsóknarflokkur var í meirihluta með Sjálfstæðisflokk