Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Sex réðust á einn og annar gaf börnum bjór í strætó

RÚV / Alexander KristjánssonLögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók sex í miðbæ Reykjavíkur í dag vegna líkamsárásar gegn einum manni. Sá var fluttur með sjúkrabíl á bráðamóttöku til frekari aðhlynningar, nokkuð slasaður, að því er segir í dagbók lögreglu.Einn hinna handteknu var vistaður í fangaklefa en látinn laus að skýrslutöku lokinni.Þá fékk lögreglan tilkynningu vegna manns sem var að gefa börnum bjór í strætó. Hann fannst ekki eftir leit lögreglu.
Sex réðust á einn og annar gaf börnum bjór í strætó
Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd