Margir töldu að flóknustu meirihlutaviðræður landsins færu fram á Akureyri í ljósi úrslitanna í sveitarstjórnarkosningunum. Enginn flokkur fékk meira en 19,4% atkvæða og enginn af þeim átt sem buðu fram fékk minna en 6%. Sjö flokkar náðu kjöri í bæjarstjórn og ljóst að þrjá flokka þurfi til að mynda meirihluta. Meirihlutinn féll en hann samanstóð af L-lista, Sjálfstæðisflokki og Miðflokki.Þrátt fyrir þessa niðurstöðu eru meirihlutaviðræður vel á veg komnar og stefnir í að L-listinn og Sjálfstæðisflokkurinn muni halda áfram samstarfi, eins og undanfarin fjögur ár, og skipta Miðflokknum út fyrir Framsóknarflokkinn.„Ég held að áherslurnar okkar séu bara svipaðar og það er kannski ástæðan fyrir því að það er ekki mikill munur milli framboða því það var bara ágætis samhljómur meðal okkar og got