Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Kínverji í gæsluvarðhaldi í Noregi grunaður um njósnir

Salten- og Lofoten dómstóllin úrskurðaði manninn í gæsluvarðhald.NRK / Ine-Sofie BruhaugKínverskur maður hefur verið handtekinn í Noregi grunaður um njósnir fyrir Kína. Maðurinn var handtekinn í Norðurlandi í Noregi á föstudag og var í morgun úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald, þar af tvær vikur í einangrun, að því er norska ríkisútvarpið NRK greinir frá.Lögmaður mannsins segir hann ekki hafa játað njósnir í yfirheyrslum lögreglu eða fyrir dómi.Norski herinn hefur verið upplýstur um málið en vill ekki tjá sig frekar. Talsverð uppbygging hernaðarinnviða stendur yfir í Norðurlandi.
Kínverji í gæsluvarðhaldi í Noregi grunaður um njósnir
Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd