Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Sveitarstjórnarkosningar á Íslandi fá toppeinkunn hjá eftirlitsnefnd

Sveitarstjórnarkosningarnar í gær fóru fram með skilvirkum og heiðarlegum hætti að mati eftirlitsnefndar Evrópuráðsins. Þetta kemur fram í tilkynningu nefndarinnar sem lagði leið sína til Íslands til að fylgjast með framkvæmd kosninganna.Nefndin heyrir undir þing sveitarfélaga og svæðisstjórna Evrópuráðsins. Hlutverk þess er að efla og fylgjast með lýðræði víða í Evrópu.Í tilkynningunni segir að eftirlitsmenn í sjö teymum á vegum nefndarinnar hafi verið sendir um land allt til að fylgjast með framkvæmd sveitarstjórnarkosninganna í gær. FULLTRÚAR NEFNDARINNAR HEIMSÓTTU YFIR 65 KJÖRSTAÐI Þingið hefur aldrei áður fylgst með kosningum á Íslandi. Á þeim rúmu 65 kjörstöðum sem nefndin heimsótti var andrúmsloftið heilt yfir jákvætt og engin athugaverð atvik komu upp.„Við vorum sérstaklega hrif
Sveitarstjórnarkosningar á Íslandi fá toppeinkunn hjá eftirlitsnefnd
Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd