Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri í Kópavogi, segir að það hafi komið henni á óvart hversu mikil afskipti Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra hafði af sveitarstjórnarkosningunum í bænum. Það hafi ekki verið forsætisráðherra sæmandi.Sjálfstæðisflokkurinn bætti við sig miklu fylgi í bænum, fékk 45,7% atkvæða og sex bæjarfulltrúa af ellefu. Þetta er í fyrsta sinn sem Sjálfstæðismenn eru með hreinan meirihluta í bæjarstjórn Kópavogs.Kristrún Frostadóttir tók virkan þátt í baráttu Samfylkingarinnar, ekki síst í Kópavogi og nýtti meðal annars tækifærið í ræðu sinni á verkalýðsdaginn, 1. maí, til að gagnrýna stefnu Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi í leikskólamálum.Samfylkingin bætti við sig fylgi í bænum, en það dugði þó skammt.„Kópavogsbúar eru stoltir og ánægðir með sína þjónustu og kunna ek