Úrslit sveitarstjórnarkosninganna styrkja hvorki stöðu Kristrúnar Frostadóttur né Samfylkingarinnar, segir Ólafur Þ. Harðarson, prófessor í stjórnmálafræði. Niðurstöður sem þessar hreki þó yfirleitt ríkisstjórnarflokka ekki frá.„Þetta styrkir náttúrulega ekki stöðu hennar né Samfylkingarinnar,“ sagði Ólafur sem ræddi niðurstöður sveitarstjórnarkosninganna í aukafréttatíma á RÚV í dag.„Hins vegar er það þannig að oft áður hafa ríkisstjórnarflokkar sopið nokkurn stórsjó í sveitarstjórnarkosningum. Þeir hafa líka verið að fá mjög vont fylgi á kjörtímabilinu í könnunum um þingkosningar. Venjulega hrekur þetta ríkisstjórnarflokka ekki frá þó að þeir kannski veikist í einhverjum skilningi.“Dramatískasta afleiðing sveitarstjórnarkosninga sem Ólafur man eftir var árið 2006 þegar Halldór Ásgrímsson