Lilja Alfreðsdóttir, formaður Framsóknarflokksins, er sátt með árangur flokksins í sveitarstjórnarkosningum. Flokkurinn fékk alls kjörna 55 sveitarstjórnarfulltrúa á landsvísu, sem er 12 færri en í sveitarstjórnarkosningunum fyrir fjórum árum. Framsókn tapaði þremur fulltrúum í borgarstjórn Reykjavíkur en bætti við sig á Ísafirði, í Grindavík og Hafnarfirði, svo fátt eitt sé nefnt.„Ég er mjög stolt af Framsóknarfólki um allt land. Það eru sigrar vítt og breitt um landið, málflutningur okkar náði í gegn um aukna samvinnu og framfarir í öllum þessum sveitarfélögum þannig að ég er er bara stolt og kát þennan sunnudaginn,“ segir Lilja í samtali við fréttastofu.Eins og áður segir tapaði flokkurinn verulegu fylgi í borgarstjórnarkosningum og fékk aðeins einn fulltrúa kjörinn; Einar Þorsteinsson