Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Fjórir Rússar drepnir í árásum Úkraínuhers

Að minnsta kosti fjórir voru drepnir í stórfelldum árásum Úkraínu á Rússland í nótt.Úkraínuher sendi hátt í 600 dróna að skotmörkum vítt og breytt um landið, allt að nágrenni höfuðborgarinnar Moskvu. Þar voru 3 drepnir og einn til viðbótar í landamærahéraðinu Belgorod.Þessar aðgerðir koma í kjölfar þungra og mannskæðra árása Rússa á Úkraínu síðustu daga og vikur. Volodymyr Zelensky Úkraínuforseti sagði í samfélagmiðlafærslu í morgun að þetta svar væri fyllilega réttlætanlegt. Skilaboðin til Rússa væru að nú þyrfti að ljúka stríðinu sem hefur staðið í rúm fjögur ár, frá allsherjarinnrás Rússa í febrúar 2022.Volodymyr Zelensky segir Úkraínu hafa verið í fullum rétti að svara fyrir árásir Rússa síðustu daga og vikur. Fjórir voru drepnir í árásum sem náðu allt að úthverfum Moskvu.
Fjórir Rússar drepnir í árásum Úkraínuhers
Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd