Talningu er lokið í öllum sveitarfélögum landsins. Sjálfstæðisflokkurinn hefur aukið fylgi sitt víða, ekki síst á höfuðborgarsvæðinu. Hér verður stiklað á stóru um úrslitin í stærstu sveitarfélögunum. Allar niðurstöður má sjá á fréttavaktinni sem lifði í alla nótt.Lokatölur í fjölmennasta sveitarfélaginu, Reykjavík, voru tilkynntar rétt fyrir klukkan fjögur í morgun. Sjálfstæðisflokkurinn vinnur sinn stærsta sigur í höfuðborginni síðan í kosningunum 2010.Flokkurinn fær 31,8 prósent atkvæða og níu af 23 borgarfulltrúum, bætir við sig þremur. Samfylkingin bíður sitt mesta afhroð í borginni frá upphafi, fær 17,7 prósent atkvæða en heldur þó þeim fimm borgarfulltrúum sem flokkurinn fékk í síðustu kosningum.Miðflokkurinn, sem náði ekki inn í síðustu kosningum, er þriðji stærsti flokkurinn með 1