Gamla fréttin: Rokvinna í „rauða-gullinu“
Rauða gullið“ er nafnið sem menn hafa gefið rækjunni að undanförnu. Þessi nafngift er ekki að ástæðulausu, því þrátt fyrir mokveiði hér á við land, hefur treg veiði annars staðar orðið til þess að rækjuverð hefur stöðugt hækkað. Hafa norskar rækjuvinnslur greitt ríflega 120 ísl. kr. fyrir kílóið af óunninni rækju. Frá þessu sagði í Fiskifréttum 19. september 1986.