Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Fyrsta val að halda áfram að vinna saman

Meirihlutinn í Múlaþingi heldur og oddvitar Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins eru bjartsýnir á framhaldið. Sjálfstæðisflokkurinn er með 30,25% fylgi, bætir við sig einum sveitarstjórnarfulltrúa og fær því alls fjóra. Framsóknarflokkurinn heldur sínum þremur með 24,23% fylgi.„Við erum afskaplega þakklát fyrir það traust sem okkur er sýnt,“ segir Berglind Harpa Svavarsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins. Niðurstöðurnar sýni skýran stuðning við meirihlutann.Jónína Brynjólfsdóttir, oddviti Framsóknarflokksins, segist afskaplega sátt við útkomuna og segir Framsókn hugnast vel áframhaldandi samstarf. Það sé fyrsta val.
Fyrsta val að halda áfram að vinna saman
Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd