Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Róbert í Viðreisn mælist inni í borginni

Viðreisn bætir við sig einum borgarfulltrúa í Reykjavík samkvæmt nýjustu tölum, er með tvo borgarfulltrúa og 10,6% fylgi. Róbert Ragnarsson er í 2. sæti á lista Viðreisnar og mælist því inni. Róbert er ekki nýgræðingur í stjórnsýslu en þetta er í fyrsta sinn sem hann er í framboði.Fréttastofa náði tali af Róberti á kosningavöku Viðreisnar.„Ég er mjög stoltur og þakklátur fyrir það traust sem okkur er sýnt í Viðreisn,“ segir Róbert. „Mitt erindi í stjórnmálum er að taka til í rekstri og koma peningunum út í þjónustu. Þannig ég mun leggja mitt af mörkum í því – að taka til og sinna borgarbúum og hverfunum og þjónustunni betur heldur en hefur verið gert.“
Róbert í Viðreisn mælist inni í borginni
Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd