Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

„Vinstra fólk er tilbúið til þess að vinna saman“

Sönnu Magdalenu Mörtudóttur oddvita Vinstrisins var ákaft fagnað þegar hún ávarpaði kosningavöku framboðsins í kvöld. Vinstrið fær 9,4% samkvæmt fyrstu tölum í Reykjavík og nær þá tveimur borgarfulltrúum inn.„Í upphafi ársins var Vinstrið ekki einu sinni til,“ sagði Sanna. „Sjáið hvar við erum núna.“„Ég vil þakka ykkur öllum fyrir að koma í þessa vegferð og treysta og sýna Reykjavíkurborg að vinstra fólk er tilbúið til þess að vinna saman.“
„Vinstra fólk er tilbúið til þess að vinna saman“
Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd