Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins segir að gleðin sé mikil í hennar herbúðum í kvöld. Niðurstaðan sé góð víða um land og fyrstu tölur úr Reykjavíkurborg séu rúsínan í pylsuendanum.Sjálfstæðisflokkurinn er með 31,9% og bætir við sig þremur borgarfulltrúum í Reykjavík samkvæmt fyrstu tölum. Sjálfstæðismenn eru einnig að skila góðum árangri í sveitarfélögum víða um landið.„Mig grunaði að kvöldið yrði gott en að það yrði svona stórkostlegt eins og raunin er, það er mjög ánægjulegt,“ sagði Guðrún á kosningavöku RÚV.Hún sagðist trúa því að forysta hennar og áhersla á samstöðu og öfluga grasrót hafi skipt sköpum.Formenn Sjálfstæðisflokksins og Miðflokksins voru himinlifandi yfir þeim niðurstöðum sem liggja fyrir í sveitarstjórnarkosningunum í kvöld. Formaður Samfylkingarinnar s