Erling Edwald, sonur Ara Edwalds oddvita Miðflokksins í Reykjavík, kveðst afar ánægður með gott fylgi flokksins samkvæmt nýjustu tölum. Faðir hans sé rétti maðurinn í borgarstjórn.„Hann á þetta skilið eftir þessa löngu og erfiðu kosningabaráttu,“ segir Erling. Hann trúir ekki öðru en að Ari eigi eftir að standa sig vel.Hvernig hefur verið að vera aðstandandi í kosningabaráttu?„Það hefur verið mjög skemmtilegt. Þetta er alltaf bara frá morgni til kvölds alla daga síðastliðna tvo mánuði.“Lestu kommentakerfin?„Nei, aldrei,“ svarar hinn yngri Edwald.