Miðflokkurinn mælist með 12,9% fylgi í Reykjavík samkvæmt fyrstu tölum. Flokkurinn fengi þrjá borgarfulltrúa með því fylgi. Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir er í 3. sæti á lista Miðflokksins í Reykjavík.„Við erum óhrædd við að tala sannleikann og segja það sem okkur finnst. Við höfum verið umdeild,“ segir Kristín. „En ég held að það sé bara kominn tími á breytingar og það verða engar breytingar án Miðflokksins. Ég held að fólk finni það alveg skýrt.“