Lokatölur liggja nú fyrir á Akureyri og er meirihluti Sjálfstæðisflokks, L-listans og Miðflokks fallinn. Staða kjörinna fulltrúa frá fyrstu tölum breytist ekkert, en Sjálfstæðisflokkurinn tók þó fram úr L-listanum, bæjarlista Akureyrar, sem stærsti flokkurinn.