Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

„Auðvitað ætluðum við okkur meira“

Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir segir Samfylkinguna geta vel við unað haldi hún sínum fimm borgarfulltrúum eftir langa valdatíð í Reykjavík. Fyrstu tölur séu í samræmi við nýlegar kannanir. Steinunn er í 3. sæti á lista Samfylkingar í Reykjavík og því líkur á að hún verði borgarfulltrúi á næsta kjörtímabili.„Auðvitað ætluðum við okkur meira. Við sjáum auðvitað fram á núna mögulega mjög skarpa hægri beygju í borginni. Þá er það auðvitað okkar hlutverk sem jafnaðarmenn að standa vörð um jöfnuðinn og velferðina í borginni, hvort sem við gerum það úr minnihluta eða meirihluta,“ segir Steinunn.
„Auðvitað ætluðum við okkur meira“
Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd