Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Miðflokkspartí engu síðri en Sjálfstæðispartí

Fréttastofa náði tali af þeim Helga Áss Grétarssyni og Kjartani Magnússyni á kosningavöku Miðflokksins. Báðir voru þeir áður í Sjálfstæðisflokknum.„Ég er spenntur fyrir því að vinna áfram undir merkjum Miðflokksins og bæta starfið enn frekar til þess að ná enn betri árangri og koma á heppilegra skipulagi,“ segir Helgi Áss. „Það eru spennandi tímar framundan hjá Miðflokknum.“„Ég held að þetta verði góð nótt,“ segir Kjartan. „Ég skynja hægri sveiflu í borginni og ég er mjög bjartsýnn á að það verði myndaður á morgun eða hinn góður hægrisinnaður meirihluti sem mun ekki hækka skatta frekar í Reykjavík.“
Miðflokkspartí engu síðri en Sjálfstæðispartí
Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd