Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

„Stemningin skiptir mestu máli“

„Við byrjuðum í Samfylkingunni og svo komum við hingað. Nóttin er ennþá ung,“ segir ungur maður fyrir utan kosningavöku Sósíalistaflokks Íslands í húsnæði þeirra á Hverfisgötu í Reykjavík. Sá er í hópi ungra kjósenda sem ætla að labba á milli kosningavaka í nótt.Hver er svona helsti munurinn á þessum tveimur kosningavökum sem þið eruð búnir að fara á?„Mitt svar er náttúrulega að ég þurfti að borga fyrir drykkinn minn hjá Samfylkingunni en ekki hér,“ segir ungi maðurinn. „Það er ákveðið mínusstig en það er bara skemmtilegt að sjá mismunandi hópa og flokka.“Hvað gerir góða kosningavöku?„Stemningin skiptir mestu máli,“ segir annar. „Góðar veitingar, góður bjór og gott fólk.“
„Stemningin skiptir mestu máli“
Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd