Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Oddviti Framsóknar í Ísafjarðarbæ: „Þetta eru ótrúlegar tölur“

Það var góð stemning á kosningavöku Framsóknarflokksins í Ísafjarðarbæ eftir að aðrar tölur bárust í kvöld. Þær gáfu vísbendingu um gott gengi flokksins í kosningunum sem hefur verið staðfest með lokatölum. Framsóknarflokkurinn bætir við sig tveimur bæjarfulltrúum og nær fjórum inn. Hann hlaut 34,3% atkvæða í Ísafjarðarbæ.Fréttastofa náði tali af Kristjáni Þór Kristjánssyni, oddvita Framsóknarflokksins í Ísafjarðarbæ, eftir að aðrar tölur voru kynntar.„Ég er himinlifandi með þetta. Þetta eru alveg ótrúlegar tölur. Við vorum alveg bjartsýn en gerðum kannski ekki ráð fyrir þessu,“ segir Kristján Þór. „Ætli við byrjum ekki strax í kvöld að ræða við fólk og sjá hvernig við komum saman góðri bæjarstjórn sem er samvinnuþýð.“
Oddviti Framsóknar í Ísafjarðarbæ: „Þetta eru ótrúlegar tölur“
Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd