„Þetta er skellur, en dómurinn er fallinn,“ segir Guðmundur Árni Stefánsson, oddviti Samfylkingarinnar í Hafnarfirði. Fyrstu tölur hafi verið mikil vonbrigði.Framsóknarmenn eru sigurvegarar kosninganna í Hafnarfirði, samkvæmt fyrstu tölum, þar sem þeir rúmlega tvöfalda fylgi sitt og fá þrjá bæjarfulltrúa í stað eins. Meirihluti þeirra og Sjálfstæðisflokksins heldur.Samfylkingin missir helminginn af fylgi sínu og fer úr fjórum bæjarfulltrúum í tvo.Guðmundur segir greinilega hægri sveiflu sjást í niðurstöðum á ýmsum stöðum en hann kveðst bjartsýnn á að jafnaðarmenn bæti við sig í næstu kosningum.„Hafnarfjörður verður áfram það kratabæli sem því ber.“Guðmundur segist ætla að „hugsa sinn gang“.„Það er ekki vanalegt í pólitík að bera ábyrgð en ég ætla nú að gera það hér,“ segir Guðmundur Árni S