Troels Lund Poulsen hefur boðið leiðtogum annarra danskra stjórnmálaflokka til fundar í viðleitni til þess að mynda starfhæfa stjórn. Líklegra þykir nú en áður að hægt verði að mynda miðjustjórn.Íbúar Danmerkur hafa verið án ríkisstjórnar í fimmtíu og tvo daga, eða frá því kosið var til nýrrar ríkisstjórnar í mars. Illa hefur gengið að mynda nýja ríkisstjórn og enn sér ekki fyrir endann á stjórnarmyndunarviðræðum.Fyrr í vikunni fékk Troels Lund Poulsen, formaður Venstre, stjórnarmyndunarumboð, eftir að Mette Frederiksen, starfandi forsætisráðherra og leiðtoga Jafnaðarmanna, tókst ekki að mynda ríkisstjórn.Poulsen hefur boðið leiðtogum annarra flokka á fundi, þar á meðal Frederiksen. Þykir það benda til þess að líkurnar á hreinni hægri stjórn fari dvínandi og sömuleiðis að viðræður beinist