Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Streeting skorar Starmer á hólm og vill Bretland aftur í ESB

Wes Streeting, fyrrverandi heilbrigðisráðherra Bretlands, hefur skorað Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands og formann Verkamannaflokksins, á hólm. Hann staðfestir að hann muni gefa kost á sér í formannskjöri flokksins, takist honum að safna nógu mörgum meðmælum til þess.„Við þurfum raunverulega keppni með hæfustu frambjóðendunum og ég verð í framboði,“ sagði Streeting.Tveir dagar eru síðan Streeting sagði af sér embætti heilbrigðisráðherra, en síðan þá hefur þótt ljóst að hann ynni að formannsframboði.Samkvæmt reglum Verkamannaflokksins þarf 20% þingmanna flokksins, þ.e. 81 þingmaður, að lýsa yfir stuðningi við tiltekinn frambjóðanda til þess að boðað sé til formannskosninga fyrr en áætlað var. Þannig nægir ekki að nógu margir þingmenn lýsi einfaldlega vantrausti á Starmer heldur þurf
Streeting skorar Starmer á hólm og vill Bretland aftur í ESB
Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd