Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Kjörsókn víða betri það sem af er degi en fyrir fjórum árum

Kjörsókn í Reykjavík er ívið meiri það sem af er degi en var í síðustu sveitarstjórnarkosningum. Klukkan 15 höfðu rétt tæp 29% kjósenda á kjörskrá greitt atkvæði sitt. Á sama tíma í fyrra höfðu rúm 26% greitt atkvæði á sama tíma. Hægt er að fylgjast með þróuninni á vef Reykjavíkurborgar.Í Kópavogi höfðu 26,6% kosið klukkan þrjú og í Reykjanesbæ tæp 21%. Á Akureyri voru 29,57% búin að kjósa klukkan þrjú.Kjörsókn í Skagafirði er mjög góð það sem af er degi, en þar höfðu 34,2% kosið klukkan 14:45. Í Ísafjarðarbæ var kjörsókn tæp 32% klukkan þrjú.Svo er betri kjörsókn í Múlaþingi það sem af er degi, en fyrir fjórum árum. Klukkan tvö höfðu 22,5% greitt atkvæði, prósentustigi meira en á sama tíma 2022.
Kjörsókn víða betri það sem af er degi en fyrir fjórum árum
Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd