Össur Skarphéðinsson, einn stofnenda og fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar, segir að Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, eigi ekki erindi í stól borgarstjóra Reykjavíkur. Byggir hann það á því að Hildur hafi kallað Sönnu Magdalenu Mörtudóttur, oddvita Vinstrisins, „súkkulaðikleinu“ í viðtali.