Formaður Samtaka smærri útgerða segir það ekki stranda á þeim eða Samtökum smábátaeigenda að halda kjaraviðræðum við Sjómannasambandið áfram. Hann segir sjómenn ekki hafa sóst eftir fundi síðan í fyrravor.Fréttastofa ræddi í fyrradag við formann Landssambands smábátaeigenda og formann Sjómannasambands Íslands. Sá síðarnefndi sagði að leita þyrfti til ríkissáttasemjara ef ekki tækist að blása lífi í kjaraviðræður sjómanna á smærri bátum.Auk Landssamtaka smábátaeigenda eiga Samtök smærri útgerða aðild að viðræðunum. Formaður þeirra er Örvar Már Marteinsson.„Sko í fyrsta lagi þá funduðum við með þeim í ég held að það hafi verið í maí í fyrra og síðan þá höfum við bara verið að bíða eftir því að það verði kallað til annars fundar. Ég tel að það hafi verið á höndum sjómannaforystunnar að kalla