Sjö, hið minnsta, voru drepnir og tugir særðir í árásum Ísraelshers á Gaza-borg í gær. Herinn segist hafa ráðið einn af leiðtogum Hamas af dögum í árásinni.Stjórnvöld í Ísrael segja að Ezzedine Al-Haddad, sem Ísraelsher felldi í gær, hafi verið leiðtogi hernaðararms Hamas og einn þeirra sem hafi skipulagt árásir á Ísrael 7. október 2023. Hamas hafa staðfest dauða hans í árásum í gær.Herinn gerði árásir á fjölbýlishús í Gaza-borg og bíl og drap sjö hið minnsta, þar á meðal barn, samkvæmt yfirvöldum á Gaza. Talsmaður almannavarna þar segir að hundruð manna búi í byggingunni sem var sprengd. Mikill eldur braust út og tugir eru særðir.Þrátt fyrir að vopnahlé hafi verið í gildi á Gaza síðan í október hefur Ísraelsher drepið tæplega 850 Palestínumenn, samkvæmt yfirvöldum á Gaza.