Nýtt sauna svæði hefur verið opnað í Sundhöll Selfoss, sem var hannað með þægindi, vellíðan og slökun að leiðarljósi. Nýja aðstaðan kostaði um 50 milljónir króna en Sveitarfélagið Árborg og World Class skipta kostnaðinum jafnt á milli sín.Mikil ánægja er með nýja sauna svæðið, sem var opnað formlega í gær að viðstöddu fjölmenni. Það kom í hlut Björns Leifssonar, eiganda World Class, að klippa á borða og opna aðstöðuna formlega. Magnús Gísli Sveinsson, sem er forstöðumaður Sundhallar Selfoss, segir nýju aðstöðuna mjög flotta.„Þetta er alveg ótrúlega vel heppnuð framkvæmd, það er bara svoleiðis,” segir Magnús.En á nýja aðstaðan eftir að slá í gegn?„Já, þetta á algjörlega eftir að slá í gegn, það er öruggt og það er alveg á hreinu, þetta er ótrúlega vel heppnað eins og ég segi og vel framkvæm