Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Mikill viðbúnaður í London vegna mótmæla

Mikill viðbúnaður er í miðborg London í dag vegna fyrirhugaðra mótmæla. 4.000 lögreglumenn eru á vakt með brynvarða bíla, hesta, hunda, dróna og þyrlur. Búist er við að tugir þúsunda leggi leið sína í miðborgina á tvenn mótmæli. Önnur þeirra skipulögðu stuðningsmenn þjóðernissinnans Tommy Robinson. Hin eru til að minnast þess að 78 ár eru liðin frá Nakba, þegar 750.000 Palestínumenn voru hraktir frá heimilum sínum. Hópur lögreglumanna við göngu undir slagorðinu Unite the Kingdom sem stendur yfir.AP / Kirsty Wigglesworth
Mikill viðbúnaður í London vegna mótmæla
Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd