Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Poulsen býður Frederiksen til viðræðna

Leiðtogi Jafnaðarmanna í Danmörku, Mette Frederiksen, er ein þeirra sem hafa fengið boð frá Troels Lund Poulsen, leiðtoga Venstre, um að mæta á fund vegna stjórnarmyndunarviðræðna í dag. Poulsen fékk stjórnarmyndunarumboð á mánudag eftir að ekki hafði gengið hjá Frederiksen að mynda stjórn. Í kosningabaráttunni hafði hann gagnrýnt efnahagsstefnu Jafnaðarmanna en virðist nú hafa breytt afstöðu sinni. Mette Frederiksen, leiðtogi Jafnaðarmanna og starfandi forsætisráðherra Danmerkur.EPA / Mads Claus Rasmussen
Poulsen býður Frederiksen til viðræðna
Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd