Mynd/Bjarni RúnarssonLögregla telur ekki að um gabb hafi verið að ræða þegar tilkynnt var um eld í ruslageymslu í Breiðholti í gær. Engan eld eða reyk var að sjá þegar slökkvilið mætti á staðinn.Skúli Jónsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, segir að þegar viðbragðsaðilar mættu á staðinn hafi verið brunalykt en enginn reykur eða eldur. Slökkviliðið hafi metið það svo að engin hætta væri á ferð og afturkallað viðbragðið.