Anna Lúðvíksdóttir, framkvæmdastjóri Amnesty International á Íslandi, segir að Amnesty, Sameinuðu þjóðirnar og mannréttindasamtök greini aukningu í beitingu kynferðisofbeldis í stríðsátökum víða um heim. Grafalvarlegt ástand sé í Súdan og Eþíópíu þar sem kynferðisofbeldi er beitt með kerfisbundnum hætti. Hún segir að bæði Amnesty og Sameinuðu þjóðirnar hafi greint að kynferðisofbeldi sé beitt í Ísrael og Palestínu.„Það má draga af því ályktanir að það sé með auknum hætti verið að beita þessu á kerfisbundinn hátt til að brjóta niður samfélög, valda skömm og niðurlægja, tortíma hreinlega mennskunni eða svona tilraun til þess. Svo já, það er greind aukning,“ segir Anna. LÝSTU SKELFILEGU OFBELDI ÍSRAELA Nicholas Kristof blaðamaður greinir frá viðtölum sínum við 14 palestínska fanga í aðsend