Formlegar áheyrnarprufur fyrir næsta njósnara hennar hátignar eru hafnar. Breski leikarinn Daniel Craig fór með hlutverk James Bonds í síðustu mynd, No Time to Die, sem var frumsýnd fyrir fimm árum.Amazon MGM Studios fékk sérleyfi fyrir Bond-myndir fyrir rúmu ári og í breska ríkisútvarpinu er vísað í tilkynningu frá kvikmyndaverinu þar sem kemur fram að áheyrnarprufur hafi staðið yfir undanfarnar vikur. Kvikmyndaverið veitir ekki nánari upplýsingar um prufurnar að svo komnu en segir að biðin eftir nýjum Bond sé brátt á enda.Denis Villeneuve leikstýrir næstu mynd og handritið skrifar Steven Knight, sem er hvað þekktastur fyrir sjónvarpsþættina Peaky Blinders.Lengi hafa verið vangaveltur um hver verður næsti Bond sem verður sjöundi leikarinn til að leika 007. Margir leikarar hafa verið nefnd