Feneyjatvíæringurinn er nú haldinn í 61. sinn. Hátíðin er tvískipt. Annars vegar eru þjóðarskálar, 96 talsins, þar sem ríki kynna listamenn sína og hins vegar miðlæg samsýning sem einn sýningarstjóri setur saman og myndar rauðan þráð hátíðarinnar. SORGLEGT YFIRBRAGÐ Á FALLEGRI SAMSÝNINGU Í ár ber samsýningin yfirskriftina In Minor Key eða Í mollhljómum og einkennist af lágstemmdum verkum og undiröldu fremur en átökum og yfirlýsingum. Sýningarstjóri er hin kamerúnsk-svissneska Koyo Kouoh, sem lést fyrir ári í miðjum undirbúningi. Markús Þór Andrésson, forstöðumaður Listasafns Reykjavíkur, segir dauða hennar óhjákvæmilega lita upplifunina.„Það er tragísk stemning yfir sýningunni. En svo þegar maður sér verkin sem eru valin saman, það er bara eitthvað mjög fallegt í gangi hérna. Mér finnst