Ragna Bjarnadóttir tók í dag við embætti forstjóra Fangelsismálastofnunar ríkisins. Hún er fyrsta konan til að vera skipuð forstjóri Fangelsismálastofnunar. Hún tekur við starfinu af Birgi Jónassyni sem var settur fangelsismálastjóri á seinni hluta árs 2024.Ragna kemur úr dómsmálaráðuenytinu þar sem hún hefur verið skrifstofustjóri frá 2017. Þar hefur hún meðal annars stýrt málaflokkum á sviði réttarvörslu, fullnustu refsinga, löggæslu, ákæruvalds, aðgerða gegn brotastarfsemi, almannavarna og alþjóðamála.Ragna lauk embættisprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands 2006 og meistaragráðu frá Oxford-háskóla 2009, með áherslu á réttarheimspeki og mannréttindi á sviði sakamála. Hún hefur áður starfað sem ákærandi, lögfræðingur hjá Mannréttindadómstóli Evrópu og sem lögfræðingur hjá umboðsmanni Alþin